Leita í fréttum mbl.is
Embla

Allar einkunnir komnar í hús..

Einkunnablað ...og ég er mjög sátt við árangurinn en ég nældi mér í eina 8, eina 8,5, og tvær 9. Jei Grin

Miss President

Katalogos hluti af logoi Ég skrapp á aðalfund Katalogosar, nemendafélags bókasafns- og upplýsingafræðinga. á fimmtudaginn með það í huga að bjóða mig fram sem vefstjóra en kom heim sem formaður hehe. Undarleg þessi pólitík hehe. Þetta verður örugglega rosalega skemmtilegt bara og eins og ég var fegin að vera búin í skólanum í vor er ég strax farin að hlakka til að byrja aftur og læra eitthvað nýtt og meira og halda uppi góðu félagslífi í skorinni okkar Grin

Slæmar afleiðingar prófa...

1) Vöðvabólga

2) Koffíneitrun vegna óhóflegrar Magicdrykkju

3) Íbúð skítugara en allt skítugt vegna tímaleysis

4) Þvottur = 4 tonn sem bíða eftir því að verða brotin saman

5) Skortur á samskiptum við sætustu krúttumús í heimi - a.k.a. Þórdís Erla

6) Tengsl við umheiminn rofin

7) Massív geislun vegna óhóflegrar tölvunotkunar

8) Skortur á næringarríku fæði

 

Góði punkturinn: Þetta verður allt yfirstaðið eftir 5 tíma :)  


Barnung móðir í leiktækjunum á McDonalds...

mæðgur„Er idda systir þín“ spurði 8 ára skvísa mig áðan þegar ég var að príla með Þórdísi Erlu í rennibrautarhúsinu á McDonalds. Ég svaraði sannleikanum samkvæmt að þetta væri dóttir mín og stelpan ásamt öðrum lillum þarna horfðu á mig eins og ég væri að ljúga. 

Við Dísin skelltum okkur í salibunu í brautinni og þar sem það var svo ótrúlega gaman ætluðum við að endurtaka leikinn. Þegar við vorum búnar að brölta í gegnum húsið heyrðist einhver kalla fyrir neðan - „mömmur mega ekki fara í rennibrautina.“ Ég var nú fljót að leiðrétta þann misskilning og sagði að ég mætti það bara víst, enda hafði ég ekki séð nein skilti um takmarkanir í leiktækin vegna aldurs, hæðar eða þyngdar og þar sem að ég passaði bara alveg ágætlega í þessa rennibraut sá ég ekkert því til fyrirstöðu að leika mér með stelpunni. Þá heyrðist aftur kallað „Kanntu að gera þetta??“

Jaháts sagði ég bara, auðvitað kann ég að renna mér Grin

Litlu smápíurnar héldu semsagt að ég væri 12 ára að „passa“ litlu systur en þegar þær voru búnar að melta það að ég væri í raun móðir hennar höfðu þær ekki meiri trú á mér en svo að þær héldu að ég væri ekki fær um að renna mér! 


Þrívíddarskynjun óskast

3d augaÉg verð að fara að láta "installa" í mig þrívíddarskynjun. Um daginn lá ég upp í rúmi og var að lesa einhverja útprenta grein fyrir skólann og SKAR MIG Í AUGAÐ. Mér tókst að skella blaði í augað á mér við flettingu og ég fékk pappírsskurð í augað. Ég var aum í auganu alveg heillengi á eftir og neyddist til að taka mér pásu frá lestrinum.
Áðan var ég svo búin að koma mér makindalega fyrir í hægindastól inn í stofu með aðferðarfræðiglósurnar mínar og las um innra og ytra réttmæti af miklum móð þegar ein blaðsíðan rauk í augað á mér. En þökk sé skjótum viðbrögðum náði ég að loka auganu í þetta sinn og slapp því með skrekkinn! 

 Einnig kæmi þrívíddarskynjun sér vel í umferðinni en bökkunarhæfileikar mínir eru af frekar skornum skammti. Þó hefur mér farið nokkuð fram og stundum tími ég varla að færa bílinn úr stæðinu ef mér hefur tekst að bakka beint kvöldið áður Wink


Svona er ég þá...

Ég varð nú að prófa þetta og er bara sátt við útkomuna, er þetta ekki svolítið ég Wink

 


jeij ég á vini!

Nú er ég búin að verða mér úti um heila 2 blogg vini. En þá má sjá hérna til hliðar

Sá fyrsti er Fannar minn sem er náttúrlega bara bestur coz he is mine Kissing

 

 

 

 

 

 

 

MillýSvo er það hún Millý mín, eðalastelpa alveg. Henni kynntist ég þegar við vorum báðar bumbur og við vorum saman í bumbugrúppu sem breyttist í mömmugrúppu sem breyttist í mömmuhittingaánbarnagrúppu hehe. Hún á líka heiðurinn af öllum fínu flottu ljósmyndunum af Þórdísi Erlu Grin


Próflestur

próflestur Já, nú er maður sko á fullu í próflestri. Það er nú ekkert lítið efni sem þarf að komast yfir og ég held að ég sé að þróa með mér alvarlegan athyglisbrest. En þetta mjakast nú samt allt áfram. Ég er nú ekki búin að vera nærri því eins dugleg að læra heima og á seinustu önn og nú fær maður sko að kenna á því. En það á sér allt sínar eðlilegu skýringar og í stuttu máli er skýringin sú að það eru bara 24 tímar í heimili og það er eiginlega bara ekki nóg þegar maður er í 17-18 eininga háskólanámi, í 2 vinnum og með fjölskyldu og allt tilheyrandi. En þetta á nú samt allt eftir að reddast. Þar sem ég er frekar einkunnasjúk er ég meira að segja að vona að þetta náist að reddast VEL híhí. En spurning hvað verður þegar maður er alltaf að finna sér eitthvað annað að gera Blush  

Sumarvinna

skjali-skjali ;)Ég er komin með sumarvinnu í vef- og skjaladeild Fasteignamats Ríkisins og líst mér bara rosa vel á þann stað. Það er allt svo fínt og flott þarna og spennandi verkefni þannig þetta leggst mjög vel í mig. Svo þar sem ég er stundum með smá svona "workaholic-syndrom" og verð að gera allt í einu þá verð ég ennþá að vinna í gömlu vinnunni minni með, svona rétt til að klára nokkur verkefni og svo auðvitað uppáhaldið mitt - stigagangaþrifinn (vííí). 

Ég er þvílíkt að reyna að losna við þetta syndrom og er til dæmis að berjast við þá löngun að taka alltof margar einingar á næsta ári, en það er bara svo erfitt að velja og hafna þegar svona mikið er í boði Shocking En vonandi tekst þetta nú á endanum og ég nái fullkomnu jafnvægi á öllum sviðum (bjartsýn).


Lok lok og læs og allt í stáli...

Allt læstÞað er búið að margsanna sig að mér er vart treystandi fyrir lyklum. Á mánudaginn greip ég veskið mitt og rölti með Dísina út í búð. Fannar kom svo og hitti okkur úti og ætlaði að fara að leika við snúlluna á meðan ég myndi klára að þrífa stigaganginn. Eftir að ég hafði skokkað heim, kom í ljós að það eina sem var í veskinu mínu voru kortin mín (ótrúlegt en satt), gloss og gleraugnaklútur. Með þessum tólum tókst mér ómögulega að opna útidyrahurðina þannig að ég hljóp og fékk lánaða lyklana hjá bóndanum, skellti þeim á skenkinn þegar ég kom inn og skundaði niður í þvottahús. Þegar þau feðginin ætluðu svo að koma inn var allt lokað og læst og aukalyklarnir sem ég skyldi eftir hjá mömmu voru inní íbúðinni frá því seinast þegar ég læsti mig úti og aukalyklarnir sem pabbi var með voru líka læstir inni eftir að ég þurfti einhvern tímann að nota þá til að komast inn. Það eina í stöðunni var því að hringja í lásasmið sem kom og bjargaði okkur og ekki er nú hægt að segja að hann hafi verið á lágu tímakaupi þannig ég var nú ekki sérstaklega vinsæl hjá kallinum þennan daginn Blush

 


Höfundur

Erna Björg
Erna Björg

Eldri færslur

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband